Tuesday, June 8, 2010
Prufa, einn tveir...prufa....tékk tékk tékk...
Sem stendur er ég að lesa nokkrar bækur. Um þessar mundir það er að segja, ekki einmitt í þessum skrifuðum orðum. Ég vil ekki segja hverjar bækurnar eru. Þær eru misgóðar eins og gefur að skilja, en engin þeirra finnst mér beinlínis slæm. Ein þeirra var þýdd á íslensku af Illuga Jökulssyni, tvær þeirra hafa verið kvikmyndaðar, ein inniheldur verk eftir Charles Bukowski og Allen Ginsberg meðal annarra og enn ein er skrifuð af bæsexjúalista um bæsexjúalista. Þó er ég eiginlega hættur að lesa hana; eða les hana lygilega hægt, með löngum hléum.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment