Tuesday, June 8, 2010

Apaleikur

Skoðanir eru skiptar á plakatinu sem hangir hér uppi í stofunni. Mér finnst það fallegt, og mér finnst það líka svalt. Öðrum finnst það bæði ljótt og hallærislegt. Það er eftirprentun af einu auglýsingaveggspjaldinu fyrir 2001: A Space Odyssey - sem er ein mín uppáhaldsmynd. Á plakatinu sést geimfar yfirgefa stóra, kringlótta geimstöð á sporbraut um jörðu, málað í sérstökum raunsæisstíl sem ég hef séð á myndskreytingum í bókum frá líkum tíma. Frá því í kringum '70. Önnur mynd sem ég gæti nefnt sem ég fíla vel er The Squid and the Whale. Uppáhaldsatriðið mitt í henni er síðan það þegar yngri strákurinn, af tveimur bræðrum sem eru í miðpunkti myndarinnar ásamt foreldrum sínum, runkar sér á skólabókasafninu og klínir brundinu á bókakili í hillu. Runkarinn er leikinn af einum Culkin-bræðra, einhverjum.* Í þeirri mynd eru fleiri fyndnir karakterar, fáránlegir akademíkerar og fólk sem þráir að vera gáfumenni og er gratt - eins og bókasafnsrunkarinn. Mér finnst myndin drepfyndin, en sjálfsagt eru skoðanir skiptar á því eins og plakatinu og Kubrick og Palahniuk flestu öðru. Skoðanir eru líka skiptar á því þegar ég geng um íbúðina brókarlaus og geri mig apalegan, beygi mig og reygi og fetti og bretti hræðilega kjánalega. Mér finnst það ljótt og ég skammast mín. Öðrum finnst það fyndið og skemmtilegt. Ég hefði áreiðanlega verið góður sem einn bjánalegu apamannanna í 2001. Eða fáránlegt wonnabí í hinni myndinni.

*Þetta er einhver misskilningur í mér, sem ég veit ekki hvaðan er sprottinn. Mér þætti óneitanlega heldur sniðugra ef rúnkarinn væri Culkin, hví veit ég ekki almennilega.

No comments:

Post a Comment