Monday, August 16, 2010

Innundir bolnum

Það hefði engan átt að undra þegar regnið féll - það hefur alltaf verið og verður áfram blautt.
-
Ég var í sumarfríi - spókaði mig í neðanafklipptum gallabuxum og sandölum, saug upp í nefið og át franskar kartöflur með tómatsósu, og misþyrmdi köttum. Þegar þetta langt er liðið á sumarið er farið að rökkva talsvert um nætur, svo auðvelt er að klófesta ketti í laumi og pína þá.
-
Reykjavík er ömurlegur bær, hvorki fugl né fiskur en ljótt og leiðinlegt hvað sem hún er. Sem er þá væntanlega eitthvert landdýr, miðað við orðtakið; skorkvikindi, froskdýr, skriðdýr eða spendýr. Og þrátt fyrir orðanna hljóðan mögulega líka strútur eða kíwí, ófleygir fuglar, því fuglinn er alveg áreiðanlega vísan í himininn, flug, flug uppi á himninum. Þá einnig emúi, kasúi, mörgæs og fleira. Eða telst kannske mörgæs í þessum skilningi, þessu sambandi, vera fiskur, vegna þess hve mjög hún dvelur í sjó og getur kafað? Hún er þó ekki þetta "hvorki/né" sem skröltir um á milli - því sannarlega dvelja mörgæsir oft langtímum saman á þurru landi (og köldu). Kannski viss afbrigði hennar á ákveðnum tímum. En þá á öðrum fiskar, eins og ég áður reifaði? Fokk. Hvað þá um ýmsa sjófugla, sem hvorttveggja fljúga hátt og vel, damla langtímum saman á yfirborði vatns og kafa djúpt niður í það? Ó fokk. Og hver er staða dódó- og geirfugla, sem eru útdauðir en nógu þekktir þó, myndu sumir segja, til að fúnkera í þessu samhengi? Æ, þvílík vandræði. En altént, svo ég haldi mig við efnið - í gærkvöldi var furðulegur fjöldi stórra hrossaflugna í íbúðinni.

No comments:

Post a Comment