Fyrirfram hafði ég ákveðið að færa eitthvað hingað inn reglulega, þó ekki væri nema eitthvað smáræði hvert sinn - áreiðanlega reglulegar en raunin hefur orðið. Með fyrirfram á ég vitanlega við: Áður en ég standsetti þetta blogg, en eftir að ég hafði ákveðið að gera það. Það hefur hver sæmilega skynsamur lesandi séð af fyrstu málsgreininni. Kannske ekki sérhver, en í það minnsta hver. Bara hver, hver-hver, hverhver, Hverhver. Altént. Með reglulega á ég við: þegar ég er ekki of fullur til að stafa nokkurn veginn rétt, en ekki svo edrú að mér komi ekkert til hugar nema það hvað á að vera í kvöldmatinn, eða hversu hræðilegt ástandið er fyrir homma í mið-Afríku, eða hvernig staða mín er hjá LÍN, eða hvort mér finnst Vonnegut eða Búlgakov fyndnari. Þvíumlíkt. Búlgakov, hæglega. Nú hef ég ekkert fært inn í talsverðan tíma, einhverjar tvær vikur. Ég er alveg staðráðinn í því að gera bragabót á því. En ekki núna - nú er ég fullur. Ég bæti úr því á morgun. Á morgun.
ed. Þessi færsla var að mestu samin og færð í gær, en rækilega uppfærð í dag - sú uppfærsla stendur sem bragabótin "á morgun", í dag. "Upp" í dag. Ég er ekki fullur.
Friday, July 9, 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment