Síðuhaldara barst á nýársdag dálítið fréttaskeyti frá gömlum vini, hafði gaman af og fékk góðfúslegt leyfi téðs vinar til að birta bréfið hér:
Sæll vinur!
Þá eru enn ein jólin yfirstaðin og nýtt ár hafið. Vonandi hefur þú haft það gott, sjálfur get ég ekki kvartað. Ég ætla ekki að nefna nein nöfn, en ég svaf hjá þekktum söngvara í jólafríinu. Ætli ég myndi ekki segja að hann væri svona miðlungsfrægur á landinu - kemur reglulega í viðburðadálkum blaða, veitir af og til viðtöl í tímarit og dægurmálaþáttum í sjónvarpi og þar fram eftir götunum. Hann er enginn Jónsi í Sigurrós, eða einu sinni Björgvin Halldórsson, en ansi þekktur samt. Ágætur listamaður ef þú spyrð mig, og gullfallegur, en auðgleymanleg hjásvæfa. Kannske skemmtikraftur frekar en listamaður, en sem sagt fínn sem slíkur. Ég á ekki von á að hitta hann aftur, sofa hjá honum eða umgangast með öðrum hætti það er að segja - það má vel vera að við hittumst á förnum vegi. Er í raun ekki ólíklegt. Að öðru leyti voru jólin heldur tíðindalítil, prýðileg vissulega en varla í frásögur færandi. Fékk reyndar fyrstu útgáfu af Svejk í íslenskri þýðingu Karls Ísfelds í jólagjöf og þykir vænt um. Ég þarf vitanlega ekki að skýra það fyrir þér. Adieu.
E.S. Gleðilegt nýtt ár, dóni get ég verið!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment