Thursday, May 26, 2011
Bloggfærsla
Ég flyt, úr Vesturbænum. Á einhvern útkjálka. Ætla þó ekki að væla frekar yfir því hér. Hef síðustu daga verið að pakka niður drasli, af því á ég víst nóg. Mest eru það bækur, plötur og geisladiskar. Furðu mikið af brennivínsflöskum líka, og allskonar vitagagnslausu rusli sem ég einhverra hluta vegna hef sankað að mér. Svejk-brúðan er ekki þess á meðal - hún er gagnleg, góð fyrir sálina. Hvað um það. Ég var að róta í gegnum box sem lágu undir sófanum í stofunni, box sem ég hef ekki hreyft við í nokkur ár. Bæði voru þau full af drasli - eða annað var fullt en í hinu var eitthvað smáræði. Hið fyrrnefnda var nánar tiltekið fullt af greiðslukvittunum, flestum 5-6 ára gömlum sýndist mér. Ég veit ekki hví í fjandanum ég safnaði þeim, eða man það ekki öllu heldur. Ég hef aldrei haldið bókhald að heitið geti eða gert annað með kvittanir. Hvað um það, hellingur af kvittunum. Innkaup til heimilisins hafa breyst.
Thursday, May 12, 2011
Í Hvalfirði um vor.
Um síðustu jól ákváðum við nokkrir félagar úr Verzló að hittast í sumarbústað eins okkar nú í vor. Við gerðum alvöru úr áætlununum um helgina sem leið. Téður bústaður er í Hvalfirði, veðrið var gott. Allt var eins og best var á kosið; við átum vel, rifjuðum upp gamla tíma, hlógum mikið og fengum okkur allvel neðan í því. Hvað um það. Þegar nokkuð var liðið á aðfararnótt laugardags, og við sátum úti á veröndinni við bústaðinn, fabúlerandi um fyllerí og kvennafar, sagði einn úr hópnum eins og utan úr blánum:
Við hlógum að þessum einkennilegu orðum hans, hann var áreiðanlega orðinn talsvert drukkinn. En honum stökk ekki bros á vör.
„Ég er með kvenmannsleggi, en mjög loðna. Enga appelsínuhúð þó.“
Við hlógum að þessum einkennilegu orðum hans, hann var áreiðanlega orðinn talsvert drukkinn. En honum stökk ekki bros á vör.
Subscribe to:
Posts (Atom)